Mar
10
2:00 PM14:00

Aðalfundur Icepro 10-3-2022 kl 14

Dagskrá:

 Formaður býður fundargesti velkomna

  • Kynningar:

    • Innleiðing innri vefverslunar Háskóla Íslands með tengingu við Timian innkaupakerfi – Tryggvi Þorsteinsson innkaupastjóri HÍ

    • Áskoranir og markmið – upptaka innri vefverslunar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu – Alda Kristín Sigurðardóttir f.v. sérfræðing innkaupa hjá LRH
      Spurningar til framsögumanna í lok hvors fyrirlesturs.

  • Aðalfundarstörf:

    • Skýrsla framkvæmdastjórnar fyrir liðið ár

    • Ársreikningur Icepro lagðir fram til samþykktar

    • Breytingar á starfsreglum

    • Ákvörðun árgjalds

    • Fjárhagsáætlun ársins 2022

    • Kosning framkvæmdastjórnar og varamanns

    • Kosning tveggja skoðunarmanna

    • Önnur mál

  • Fundi slitið

Hlekkur á kynningar fundarins:

Tryggvi Þorsteinsson - Innri vefverslun HÍ

Alda Kristín Sigurðardóttir - Áskoranir og markmið - upptaka innri vefversunar hjá LRH og möguleikar hjá Kópavogi

View Event →
Oct
13
2:30 PM14:30

Samtal um EDI 2 XML 13.10.2021

Icepro bíður til rafræns fundar um uppfærslu viðskiptaskeyta úr EDI í XML

Öllum hugbúnaðarhúsum sem bjóða upp á ERP lausnir er boðið ásamt stærstu notendum EDI viðskiptaskeyta á Íslandi.


Icepro gaf út nýverið í samstarfi við Staðlaráð leiðbeiningarit um uppfærslu fimm EDI verslunarskeyta í XML skeyti. Ritið er fáanlegt í vefverslun Staðlaráðs (ÍST TS 239:2021) og kostar kr. 2.480. Ritið er ætlað til að hjálpa þeim sem vilja uppfæra núverandi verslunarskeyti úr EDI í XML.  Hér er Hlekkur á ritið

Við ætlum að ræða tilganginn með uppfærslu, þær tæknilegu áskoranir sem fylgja slíkri uppfærslu, ágreining og að sjálfsögðu að kynna ritið.

Ef þú telur að einhver innan þíns fyrirtækis ætti að taka þátt í þessum fundi er þér velkomið að áframsenda boðið á viðkomandi.

Dagskrá:

Tilgangurinn            : Bergljót Kristinsdóttir framkv.stjóri Icepro segir frá tilganginum með útgáfu leiðbeiningaritsins EDI2XML

EDI2XML                  : Georg Birgisson hjá Midran ehf. kynnir útgáfu leiðbeiningarits um uppfærslu fimm verslunarskeyta

Uppfærsla                : Steinar J. Kristjánsson yfirmaður upplýsingadeildar Bónus segir frá áætlun Haga um uppfærslu

Áskoranir                 : Umræða um þær áskoranir sem fylgja því að uppfæra úr EDI í XML

Ágreiningsmál        : Umræða um ágreining um skeytanotkun og hvert skal vísa þeim málum

 

Kynningar frá fundinum:

EDI2XML kynning Georg Birgisson
Uppfærslan - Kynning Haga

View Event →
Aðalfundur Icepro 18.2.2021
Feb
18
2:00 PM14:00

Aðalfundur Icepro 18.2.2021

Aðalfundur Icepro verður haldinn með fjarfundarsniði,

fimmtudaginn 18.2.2021 kl. 14.00.

Kynningar frá fundinum eru aðgengilegar hér við hvern dagskrárlið:

Dagskrá:

1.      Ávinningur af Evrópuverkefni um upptöku EN16931/TS236 fyrir Ísland – Einar Geir Jónsson Unimaze - Kynningin

2.      EDI 2 XML – verkefni Icepro og Staðlaráðs – Georg Birgisson Midran - Kynningin

3.      Af hverju að ríða á vaðið með EDI 2 XML – Steinar J. Kristjánsson Bónus - Kynningin

4.      Hefðbundin aðalfundarstörf

a.      Skýrsla framkvæmdastjórnar fyrir liðið ár

b.      Ársreikningur Icepro vegna 2020, endurskoðaður

c.       Ákvörðun árgjalds

d.      Fjárhagsáætlun yfirstandandi árs

e.      Kosning framkvæmdastjórnar og varamanns

f.        Kosning tveggja skoðunarmanna

5.       Önnur mál

Stjórnin

View Event →
Nov
12
8:45 AM08:45

Skilvirkari útgáfa reikninga, aukið hagræði – Ísland í fararbroddi í Evrópu

Fimmtudaginn 12. nóvember kl. 8.45 fer fram opinn fundur á vegum Icepro, Staðlaráðs Íslands og Unimaze.

Glærur fundarins:
Skilvirkari útgáfa reikninga kynning Einar Geir jónsson
Skiptir máli að uppfæra rafrænan reikning í nýjustu útgáfu TS236? kynning Markús Guðmundsson
Staðan á Íslandi í dag kynning Bergljót Kristinsdóttir
Rafræn viðskipti - heilræði ráðgjafans kynning Davíð Stefán Guðmundsson

Hlekkur á streymi af fundinum

Fundurinn ber yfirskriftina: „Skilvirkari útgáfa reikninga, aukið hagræði – Ísland í fararbroddi í Evrópu“.

Þar verður fjallað um ávinning og hagræði í tengslum við einföldun í viðskiptum á milli fyrirtækja. Hvernig rafrænir reikningar geta sparað stórum og smáum fyrirtækjum verulegar upphæðir – hver vill ekki vera með í því?

Ísland er í fararbroddi í Evrópu í innleiðingu á rafrænum reikningum en þó má enn gera töluvert betur og má reikna með að enn séu ca 20 milljónir reikninga í umferð sem hægt er að koma á rafrænt form. Þessi reikningar kosta þjóðarbúið gróft metið um 40 milljarða króna.

Þeir sem vilja kynna sér málið eru hvattir til að skipta alfarið yfir í rafræna reikninga, pantanir og aðrar lausnir sem auðvelda og einfalda sjálfvirkni, minnka villuhættu og aðra sóun.

Dagskrá fundarins:

  • Inngangur – Einar Geir Jónsson, Unimaze

  • Skiptir máli að uppfæra rafrænan reikning í nýjustu útgáfu (TS236)? Hvernig nýtist það best? – Markús Guðmundsson, Unimaze

  • Staðan á Íslandi í dag – Bergljót Kristinsdóttir, Icepro

  • Rafræn viðskipti, heilræði ráðgjafans – Davíð Stefán Guðmundsson, Deloitte

ICEPRO eru samtök um rafræn viðskipti á Íslandi. Samtökin voru stofnuð árið 1989 ásamt systursamtökum í öðrum Evrópulöndum. Tilgangurinn var að setja á fót stofnanir sem væru vettvangur fyrir samræmingu í rafrænum viðskiptum landa á milli. Til þess skyldi nota samræmda staðla og gagnasnið. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en tilgangurinn er enn hinn sami og þörfin engu minni.

Staðlaráð Íslands gefur út íslenska staðla og er vettvangur hagsmunaaðila til að vinna að stöðlun og notkun staðla á Íslandi. Ráðið starfar á grundvelli laga um stöðlun. Aðild að Staðlaráði hefur margvíslega kosti.

Staðlaráð selur íslenska staðla og staðla frá fjölmörgum staðlasamtökum, stendur fyrir námskeiðum og veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu um hvaðeina er lýtur að stöðlum og stöðlun.

Staðlaráð er fulltrúi Íslands í alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO og IEC og evrópsku staðlasamtökunum CENCENELEC og ETSI og þátttakandi í norrænu stöðlunarsamstarfi INSTA og NOREK.

Unimaze er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði sem býður upp á að senda og móttaka rafræn viðskiptaskjöl, svo sem reikninga, pantanir, greiðslukvittanir og fleira. Félagið leggur sig fram við að vera í fararbroddi þegar kemur að stöðlum, áreiðanleika og tæknilegum lausnum, svo sem sannreyningu, vottun og örugga auðkenningu. Unimaze er með starfstöðvar í þremur Evrópulöndum og viðskiptavini um allan heim.

icepro logo new 2.jpg
Staðlaráð.gif
Unimaze.png
Samsett lógo.PNG
View Event →
Aðalfundur Icepro 20.02.2020
Feb
18
12:00 AM00:00

Aðalfundur Icepro 20.02.2020

Aðalfundur Icepro verður haldinn fimmtudaginn 20. febrúar kl. 12 að Engjategi 9, kjallara.

Dagskrá:

Formaður bíður gesti velkomna
Léttur hádegisverður snæddur

Erindi flutt:

  • Könnun um notkun rafrænna viðskiptaskeyta á Íslandi
    Bergljót Kristinsdóttir framkv.stjóri Icepro kynnir niðurstöður könnunar sem gerð var í ágúst 2019.

  • Af hverju eigum við að uppfæra EDI í XML
    Steinar J. Kristjánsson Upplýsingatæknistjóri hjá Bónus

  • Nýtt verkefni Icepro: uppfærsla fjögurra EDI verslunarskeyta í XML viðmið
    Bergljót Kristinsdóttir segir frá verkefni í undirbúningi

Hefðbundin aðalfundarstörf:

  • Skýrsla framkvæmdastjórnar fyrir liðið starfsár

  • Ársreikningur Icepro v. 2019, endurskoðaður af tveimur skoðunarmönnum

  • Breytingar á samþykktum

  • Ákvörðun árgjalds

  • Fjárhagsáætlun yfirstandandi starfsárs

  • Kosning framkvæmdastjórnar og varamanns

  • Kosning tveggja skoðunarmanna

  • Önnur mál

Glærur frá fundinum:

Könnun um notkun rafrænna reikninga og kynning á verkefni EDI í XMLAfhverju XML skeyti í stað EDI?

Ársskýrsla 2020

View Event →
Sep
18
to Sep 19

Fjármál fyrirtækja í stafrænum heimi - hádegisfundur 18. september

Nú þegar stafrænar lausnir eru á hverju strái fyrir hinn almenna notanda er ekki úr vegi að athuga hvaða stafrænu þjónustur og búnaður eru í boði fyrir fyrirtæki sem leita lausna til hagræðingar.

Fundurinn er haldinn í samstarfi við Ský og er fyrir alla þá sem vinna við fyrirtækjarekstur og bókhald. 

Hvenær: 18. september 2019 kl. 12:00 - 14:00

Hvar: Grand hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, Háteigur, 4. hæð

Matseðill: Kjúklingabringur Gordon bleu, m. osti, skinku og hvítvínssósu. Sætindi / kaffi /te á eftir

Verð: Félagsmenn Ský: 6.400 kr., Utanfélagsmenn: 10.500 kr., Félagar utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.

Dagskrá

11:50   Afhending gagna

12:05   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20   Stafræn umbreyting - sýn fjármálastjóra

Í erindinu er fjallað um tækifæri fjármálstjóra til að nýta tækni til aukinnar skilvirkni, áreiðanleika gagna og virðissköpunar, sem og mikilvægi samstarfs fjármáladeilda og UT deilda.
Sunna Dóra Einarsdóttir, Deloitte

12:40   Af hverju að uppfæra í nýjan Evrópustaðal?
Rafrænir og sjálfvirkir reikningar í bókhaldi borgarinnar. Reynt verður að svara spurningunni af hverju að uppfæra í nýjan Evrópustaðal fyrir rafræna reikninga en einnig verður fjallað um mikilvægi þess að ná fram almennri og vandaðri innleiðingu á staðlinum.
Lúðvík Vilhelmsson, Reykjavíkurborg

13:00   Rafrænn fyrirtækjarekstur, tækifæri og áskoranir
Auðkenningar, undirskriftir og traust eru forsendur skuldbindinga, en gæði geta verið mismunandi. Fjallað verður um tækifærin og áskoranirnar sem rafrænar auðkenningar og rafrænar undirskriftir færa okkur og hvernig við byggjum upp traust á rafrænum ferlum nú þegar eIDAS reglugerðin hefur verið innleidd í íslenskan rétt.
Elfur Logadóttir, ERA

13:20   Notkun greiðslutilkynninga hjá opinberum aðilum og birgjum þeirra
Nýr íslenskur staðall Greiðslutilkynning TS-142 var gefinn út á árinu. Honum er ætlað að auðvelda fyrirtækjum afstemingar á greiðslum frá stórkaupendum.
Þorvaldur E. Sigurðsson, TESCON slf.

13:40   Sjálfvirknivæðing viðskiptaferla (xPa) – Look beyond the Hype
Robotic Process Automation (RPA) hefur þróast verulega undanfarin ár, en við þurfum að horfa inn á við hvað þetta þýðir í raun og veru og hvað þarf að gera til að ná fram raunverulegu virði í allri virðiskeðjunni. Farið verður yfir tækifærin sem í þessu felast og helstu áskoranir sem fylgja.
Svavar H. Viðarsson, Origo

14:00   Fundarslit

Fundarstjóri: Bergljót Kristinsdóttir

View Event →
Feb
5
12:00 PM12:00

Aðalfundur Icepro 21. febrúar 2019

30 ára afmælisaðalfundur Icepro verður haldinn 21. febrúar n.k. kl. 2 í sal Verkfræðingafélagsins að Engjategi 9 í Reykjavík.

Dagskrá:

1. Hjörtur Þorgilsson formaður opnar fundinn og bíður upp á kaffi og afmælisköku
2. Erindi flutt:
a. Karl F. Garðarsson - Icepro í 30 ár
b. Guðrún Birna Finnsdóttir  teymisstjóri hjá Ríkiskaupum - Nýtt útboðskerfi ríkisins.
c. Gunnlaugur Jónsson framkv.stjóri Fjártækniklasans - stafrænar fjártæknilausnir
3. Skýrsla framkvæmdastjórnar fyrir liðið starfsár.
4. Ársreikningar ICEPRO, endurskoðaðir af tveim skoðunarmönnum.
5. Breytingar á starfsreglum.
6. Ákvörðun árgjalds.
7. Fjárhagsáætlun yfirstandandi starfsárs.
8. Kosning framkvæmdastjórnar og varamanns.
9. Kosning tveggja skoðunarmanna.
10. Önnur mál.

View Event →
Dec
12
3:00 PM15:00

Kynning á nýrri tækniforskrift rafræns reiknings TS-236

Þann 12. desember n.k. kl. 15 mun Icepro standa fyrir kynningu á nýrri tækniforskrift fyrir sam-evrópskan rafrænan reikning TS-236.

Viðburðurinn verður haldinn í Borgartúni 35, Húsi atvinnulífsins á fyrstu hæð.

Farið verður yfir þær breytingar sem hafa átt sér stað frá fyrri tækniforskrift TS-136.

Allir opinberir aðilar eiga að geta tekið á móti skeytum á þessu formi frá og með 18. apríl 2019. Kynningin er nauðsynleg öllum þeim sem koma að hönnun og forritun rafrænna reikninga.

Kynnir verður Bergþór Skúlason formaður tækninefndar FUT hjá Staðlaráði. Með honum verður þýðandi staðalsins Georg Birgisson.

Boðið verður upp á léttar jólaveitingar. Skráning að neðan.

Stjórn Icepro

Glærur Bergþórs
Glærur Georgs

View Event →
Aðalfundur Icepro
Mar
22
12:00 AM00:00

Aðalfundur Icepro

Aðalfundur ICEPRO 2018

verður haldinn í Kviku Borgartúni 35, fimmtudaginn 22. mars kl. 12.00

Dagskrá:

1.      Hádegisverður snæddur

2.      Erindi flutt
         Einar Birkir Einarsson – Upplýsingaverkefni ríkisins
         Arndís Thorarensen – Stafræn vegferð Arionbanka

3.      Veiting viðurkenninga fyrir framúrskarandi rafræn verkefni

4.      Skýrsla framkvæmdastjórnar fyrir liðið starfsár.

5.      Ársreikningar ICEPRO, endurskoðaðir af tveim skoðunarmönnum.

6.      Breytingar á starfsreglum.

7.      Ákvörðun árgjalds.

8.      Fjárhagsáætlun yfirstandandi starfsárs.

9.      Kosning framkvæmdastjórnar og varamanns. 

10.    Kosning tveggja skoðunarmanna.

11.     Önnur mál.

 

View Event →
Feb
8
1:00 PM13:00

Fundur um traustþjónustur 8. febrúar

Dagskrá fundarins:

1. Elfur B. Logadóttir lögmaður - Lagaleg atriði og eIDAS yfirlit

2. Þorvarður Kári Ólafsson Staðlaráði - Staðlar og viðmið

3. Kristinn Stefánsson Arionbanka - Þörf á samræmingu

Í lokin verður opnað fyrir umræður undir stjórn Arnalds Axfjörð.

Tími: 18:00, 8. febrúar 2018 / Staðsetning:  Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Skráning á viðburðinn hér að neðan.

View Event →
Jan
11
to Jan 12

Rafrænt innkaupaferli - Hvar erum við stödd og hvert er næsta skref

Hvar erum við stödd og hvert er næsta skref?
Opinn upplýsingafundur um rafræn innkaupaferli,  11. janúar 2018 kl. 15


Icepro boðar til upplýsingafundar um rafrænt innkaupaferli þann 11. janúar kl. 15 - 17  í fundarsal Kviku í Húsi atvinnulífsins í Borgarúni 35.

Frummælendur eru:

·         Jakob V. Finnbogason, yfirmaður innkaupa hjá Landspítalanum.
Væntingar og vandamál - Sendar hafa verið pantanir og tekið á móti reikningum hjá ákveðnum deildum Landspítalans í nokkur ár. Jakob mun segja frá þeirri vegferð og hvernig tekist hefur til.

·         Rafn Rafnsson er stofnandi Timian software ehf. sem nú hefur verið sameinað Nýherja. Rafn mun segja okkur frá innkaupa- og beiðnakerfi sem Timian hefur þróað og er í notkun hjá stórum aðilum eins og Reykjavíkurborg, Hrafnistu ofl. Verið er að leggja lokahönd á pöntunarskeyti í XML sem munu auka gæði kerfisins til muna fyrir þá birgja sem tengjast því.

·         Þórður Bjarnason er stjórnandi innleiðingar á innkaupakerfi fyrir Icelandair Group og dótturfyrirtæki. Gert er ráð fyrir að fara alla leið í rafrænum viðskiptum með pantanir, reikninga og vörulista. Þórður mun segja okkur frá þeirri vegferð og hvernig staðið er að henni.

·         Bergþór Skúlason, formaður tækninefndar FUT og stjórnandi innleiðinga rafrænna reikninga hjá ríkinu segir frá þeim breytingum sem hafa átt sér stað varðandi staðla sem tengjast innkaupaferli að undanförnu.

Eftir framsögu verða pallborðsumræður.

View Event →