Rafræn innkaup í Evrópu - þriðja útgáfa

29.7.2010

Samantekt yfir rafræn innkaup í Evrópu - þriðja útgáfa.

Í Evrópu eru í gangi nokkur verkefni til að nútímavæða rafræn innkaup. Því fer fjarri að allir starfsmenn og sérfræðingar þessara verkefna viti hver af öðrum, jafnvel þótt verkefni þeirra snúist um svipaðar lausnir. Ein skýringin er sú að starfsemin fer fram í ýmsum samtökum í mörgum löndum Evrópu.

Þess vegna hefur málþing um rafræn innkaup (eProcurement Forum), ser hýst er af "ePractice" vefgáttinni, tekið saman og greint lykilverkefni, sem hafa áhrif á þróun rafrænna opinberra innkaupa í Evrópu. Niðurstaðan varð greinargott yfirlit eða samantekt yfir öll þessi verkefni. Tilgangurinn er að upplýsa alla hagsmunaaðila rafrænna innkaupa um hvað er að gerast á þessu sviði í Evrópu, þ.e. "hver gerir hvað".

Tengillinn http://www.epractice.eu/en/library/322148 vísar á vefsíðu ePractice þar sem samantektin eða yfirlitið er kynnt undir nafninu "EU: The e-Procurement Map - Third Edition".

Neðar á síðunni er að finna tengil í PDF skrá er nefnist "The eProcurement Map -3rd edition - A map of activities having an impact on the development of European interoperable eProcurement solutions.pdf", sem geymir hið eiginlega yfirlit.

 



<< til baka | prenta
Icepro - Húsi verslunarinnar - Kringlunni 7, 103 Reykjavík - sími: 510 7100 - icepro@icepro.is