Tilnefning til verðlauna fyrir rafræn viðskipti
|
19.1.2012
|
Árlega veitir ICEPRO EDI-bikarinn í verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sviði rafrænna viðskipta. Bikarinn er veittur því fyrirtæki, stofnun, verkefni eða lausn sem skarað hefur fram úr að mati dómnefndar. Hefð er fyrir því að viðskiptaráðherra afhendi bikarinn á aðalfundi ICEPRO í febrúar. jeux
spiele
car games
cartoon network
jogos meninas
mahjong games
meira >>
|
Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum
|
29.12.2011
|
Stefnur og straumar í rafrænum viðskiptum - Hvert stefnir Evrópa
Bergþór Skúlason, tölvunarfræðingur, ITST, Danmörku:
ESB stefnir að því að koma á rafrænum viðskiptum sem byggja á XML/CEN/BII skeytasniði og svokölluðu fjögurra horna viðskiptalíkani. Það sem til þarf eru samræmdir skeytastaðlar, skilgreiningar á reikningi sem “allir” geta stuðst við. Þjónustuaðilar verða að geta tengst hver öðrum og hægt verður að fletta upp viðskiptaaðilum um alla Evrópu.
meira >>
|
Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum
|
27.12.2011
|
eReikningar: Væntingar og framtíðaráform notanda
Guðmundur Ragnar Ólafsson, innkaupafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar:
Bæði í innkaupa- og upplýsingastefnu Hafnarfjarðarbæjar er lögð áhersla á rafrænar lausnir með hliðsjón af umhverfis- og hagkvæmissjónarmiðum. Í samræmi við þessar stefnur hefur bærinn á undanförnum árum tekið þátt í verkefnum sem tengjast rafrænum lausnum. Eitt af þessum verkefnum er innleiðing og notkun rafrænna reikninga eða svokallaðra e-reikninga.
meira >>
|
Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum
|
22.12.2011
|
Reynslan af rafrænum reikningum hjá Rekstrarvörum
Heiðrún Hlín Guðlaugsdóttir, gjaldkeri/innheimtufulltrúi:
Rafrænir reikningar geta einfaldað bókhald og aukið eftirlit með greiðslum og bjóða þannig upp á hagræðingu. Hagræðingin getur líka falist í styttri vinnslutími og betri upplýsingagjöf.
meira >>
|
Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum
|
19.12.2011
|
N1: Útsending rafrænna reikninga til viðskiptamanna – og móttaka rafrænna kostnaðarreikninga frá birgjum
Kristján Gunnarsson, upplýsingatæknideild:
N1 hefur undanfarna mánuði tekið við rafrænum kostnaðarreikningum frá nokkrum af stærstu birgjum sínum.
meira >>
|
Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum
|
15.12.2011
|
Ávinningur Reykjavíkurborgar af rafrænum viðskiptalausnum
Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar:
Reykjavíkurborg hefur um árabil unnið að því að innleiða rafrænar viðskiptalausnir til að auka skilvirkni, bæta þjónustu, bæta innra eftirlit og ekki síst til að lækka kostnað.
meira >>
|
CEN/eInv3 CWA um rafræna reikninga til umsagnar
|
29.11.2011
|
Staðlasamtök Evrópu (CEN) gefa út drög að samþykkt vinnunefndar til umsagnar. Drög þessi lúta að rafrænum reikningum, leiðbeiningum, notkunarferlum, innleiðingu, reikningagáttum og starfsreglum. Drög þessi eru nú til almennrar skoðunar og umsagnar.
Umsagnarfrestur er til 23. janúar 2012. Sjá viðfest skeyti.
meira >>
|
Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum
|
29.11.2011
|
Mikil og góð þróun hefur átt sér stað hérlendis við innleiðingu rafrænna viðskipta undanfarna mánuði. Flest öll hugbúnaðarfyrirtæki eru komin með lausnir og mörg stór og lítil fyrirtæki ásamt stofnunum eru farin að nýta sér þessa tækni og ná fram ávinningi af nýtingu hennar.
Á hádegishaustfundi ICEPRO og Skýrslutæknifélagsins var sagt á mannamáli hverju við höfum áorkað, hvert stefnt er með innleiðingu rafrænna viðskipta og hvaða vandamál og verkefni þarf að leysa til að Ísland nái aftur ásættanlegri stöðu í samanburði við Evrópuríki.
meira >>
|
Rafræn innkaup á tímum fjármálakreppu
|
29.6.2011
|
"eProcurement in the time of economic crisis"
Ákveðið verklag hefur verið tekið upp hér og búið að fjárfesta í lausnum sem duga til að tengjast Norðurlöndum. Því er mikið í húfi að við séum samstíga því sem gerist annars staðar í Evrópu. Aukin viðskipti á alþjóðavettvangi kalla á aukna hagkvæmni, sem næst með rafrænum viðskiptum.
meira >>
|
Rafræn innkaup á alþjóðavísu
|
3.6.2011
|
Fleiri lönd treysta nú á innviði PEPPOL til rafrænna innkaupa. Fyrir voru Danir og Svíar, en nú hafa Norðmenn, Bretar og ESB bæst í hópinn.
meira >>
|
Reykjavíkurborg tekur á móti rafrænum reikningum
|
16.5.2011
|
Mjólkursamsalan og fleiri birgjar senda nú reglulega rafræna reikninga til Reykjavíkurborgar. Hjörtur Grétarsson, upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar segir í tilkynningu að markmið borgarinnar sé "... áframhaldandi innleiðing rafrænna reikninga hjá borginni flýti fyrir skráningu gagna, fækki skráningarvillum og hraði afgreiðslu reikninga."
meira >>
|
Þing hagsmunaaðila um rafræna reikninga
|
30.4.2011
|
Á fundi NES um daginn var talið líklegt að boðað yrði til þings fjölhagsmunaaðila um rafræna reikninga. Framkvæmdastjórn ESB vill fá skýra stefnu um rafræna reikninga, jöfnuð raf- og pappírsreikninga o.fl. Til þess þarf að skipa hóp sérfræðinga.
meira >>
|
Samstarf um miðlun rafrænna reikninga
|
27.4.2011
|
Reikningar með NES/UBL sniði berast nú reglulega til Reykjavíkurborgar.
meira >>
|
Fyrsti PEPPOL reikningurinn sendur og móttekinn!
|
31.3.2011
|
Þann 1. mars 2011 náðist sá merki áfangi að fyrsti rafræni reikningurinn var sendur á milli landa eftir leiðum PEPPOL (Pan-European Public Procurement OnLine project).
meira >>
|
Hafnarfjarðarbær hlaut EDI-bikarinn!
|
22.2.2011
|
Hafnarfjarðarbær hlaut EDI-bikarinn!
Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri tók við bikarnum frá Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir framúrskarandi árangur í rafrænum viðskiptum á liðnu ári.
meira >>
|
Dagskrá aðalfundar ICEPRO mán. 21. feb. 2011
|
16.2.2011
|
Dagskrá
Aðalfundar ICEPRO 21. feb. 2011
meira >>
|
Aðalfundur ICEPRO 21. febrúar 2011
|
7.2.2011
|
Aðalfundur 2011
EDI bikarinn afhentur í fimmtánda sinn
meira >>
|
Greining ESB á stöðu rafrænna reikninga
|
7.12.2010
|
Greining ESB á stöðu rafrænna reikninga
Í mars 2009 gaf ESB út 353 blaðsíðna greiningu sína á kröfum til rafrænna reikninga fyrirtækja í tengslum við rafræn innkaup opinberra aðila. Tekið var viðtal við fulltrúa Danmerkur, Finnlands, Íslands Spánar, Svíþjóðar, Bretlands, Belgíu, Frakklands, Sviss, Ungverjalands, Noregs, Ítalíu, Lettlands og rætt er við hagsmunaaðila s.s. IBM, SAP, o.fl. Fjallað um þarfir stórra og smárra fyrirtækja (SME).
http://ec.europa.eu/idabc/servlets/Doc9a95.pdf?id=32108
meira >>
|
Grænblöðungur um rafræn innkaup í Evrópu
|
5.12.2010
|
Þann 18. nóvember gaf framkvæmdastjórn ESB út grænblöðung um aukna notkun rafrænna innkaupa í Evrópu. Í bígerð er hvítbók um hvaða skref framkvæmdastjórnin þarf að taka til að koma á innviðum samtengdra rafrænna innkaupa og er grænblöðungnum ætlað að ver fyrsta skefið í átt að þeirri innleiðingu.
meira >>
|
Burðarlagið – tillaga ICEPRO, nóv. 2010
|
25.10.2010
|
Tilmæli til þjónustuaðila, hugbúnaðarhúsa og viðskiptamiðja
· að stefnt sé að upptöku BUSDOX „ferhyrnds tengilíkans“ (four corner model).
· að allir þjónustaðilar styðji aðgangsleiðirnar START og LIME frá PEPPOL.
· æskilegt er að komið verði á fót einfaldri vefsíðu fyrir smærri aðila.
· stofna þarf samræmda skráningarmiðju (Registry), fyrir vefþjónustur sem tengjast netinu. Æskilegt er að ein símaskrá/vistfangabók sé til fyrir allt landið.
meira >>
|
Jákvæð áhrif rafrænna reikninga á umhverfið (!)
|
9.9.2010
|
Hollenska efnahagsráðuneytið (ez.nl) hóf undibúning rafrænna reikninga árið 2008. Ákveðið var að kanna áhrif rafvæðingar reikninga á umhverfið og hollensk rannsóknarstofnun hagnýtra náttúruvísinda (tno.nl) var fengin til verksins.
meira >>
|
PEPPOL tenging á ICT 2010 ráðstefnu 28.9.
|
20.8.2010
|
PEPPOL verkefnið stuðlar að samtengingu Evrópskra innkaupaferla í eina heild. Íslendingar stefna að tengingu rafrænna viðskipta við Evrópu eftir leiðbeiningum PEPPOL.
meira >>
|
Rafræn innkaup í Evrópu - þriðja útgáfa
|
29.7.2010
|
Samantekt yfir rafræn innkaup í Evrópu - þriðja útgáfa. Í Evrópu eru í gangi nokkur verkefni til að nútímavæða rafræn innkaup. Því fer fjarri að allir starfsmenn og sérfræðingar þessara verkefna viti hver af öðrum, jafnvel þótt verkefni þeirra snúist um svipaðar lausnir. Ein skýringin er sú að starfsemin fer fram í ýmsum samtökum í mörgum löndum Evrópu.
meira >>
|
Rafræn viðskipti á Íslandi – Lausnir fyrir rafræna
|
15.7.2010
|
Með þróun internettækninnar hefur komið til sögunnar nýtt verklag og staðlar sem skapa grunn fyrir frekari útbreiðslu rafrænna viðskipta og gera lausnaraðilum kleift að þróa hagkvæmar lausnir fyrir viðskiptavini sína.
meira >>
|
Viðbrögð við skýrslu um rafræna reikninga
|
28.6.2010
|
Framkvæmdastjórn ESB setti saman sérfræðingahóp um rafræna reikninga með umboð til að ákveða aðgerðarramma fyrir árslok 2009. Lokaskýrsla hópsins kom út og var send völdum fyrirtækjum og stofnunum til umsagnar, meðal annars úr hópi verslunar, lausnaraðila og skattayfirvalda.
meira >>
|
Hafnarfjarðarbær tekur upp rafræna reikninga
|
31.5.2010
|
Hafnarfjarðarbær tekur upp notkun eReikninga
Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að taka upp notkun rafrænna reikninga (eReikninga) í stað hefðbundinna pappírsreikninga. Ástæður þess eru annars vegar sparnaður og hins vegar aukin áhersla á umhverfissjónarmið sem er í samræmi við innkaupastefnu bæjarins.video izle
meira >>
|
Gögn frá ráðstefnu í Madrid um rafræna reikninga
|
30.4.2010
|
Lokið er tveggja daga ráðstefnu um rafræna reikningagerð í Madrid 27-28. apríl s.l. Gögn fyrirlesara ráðstefnunnar er að finna á veffanginu:
http://ec.europa.eu/enterprise/newsroom/cf/itemlongdetail.cfm?item_id=4005&lang=en .
meira >>
|
GLEÐILEGT SUMAR!
|
21.4.2010
|

Gleðilegt sumar!
Með þökkum fyrir samstarfið í vetur sem leið.
meira >>
|
Notkun VAT/VSK í rafrænum reikningum ESB
|
6.4.2010
|
Frumvarp um breytingu á tilskipun framkvæmdaráðs ESB 2006/112/EC um samræmt skipulag virðisaukaskatts við reikningagerð.
Markmið: að fjarlægja hindranir við sendingu og varðveislu rafrænna reikninga.
meira >>
|
Afurðir CEN/BII vinnunefndar
|
30.3.2010
|
Staðlasamtök Evrópu (CEN) hafa gefið út CWA samþykktir fyrir rafræn innkaup.
Vinnunefndin WS/BII (Workshop on 'Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe') hefur lokið 26 umgjörðum, sem snerta rafræn innkaup, sjá lista neðst. Samþykktirnar ná yfir innihaldslýsingar skeyta, dæmi, leiðbeiningar, verkfæri, svo og samræmdar tillögur um málskipan XML skjalanna.
meira >>
|
Má spara stórfé í vegagerð hérlendis?
|
30.3.2010
|
Góðar fréttir frá Norstellu, systurfélagi ICEPRO í Noregi.
Shortsea verkefninu er ætlað að lækka sjóflutningskostnað í Evrópu um 10-20% og hvetja þannig til sjóflutninga fremur en landflutninga. Sjá http://www.shortseaxml.org/
Verkefnið er unnið fyrir Evrópulönd, en það er spurning hvort Shortsea geti lækkað sjóflutninga í kringum Ísland. Ef svo er mætti kannski spara stórfé í vegagerð hérlendis?
meira >>
|
Af aðalfundi ICEPRO 2010
|
29.3.2010
|
Aðalfundur ICEPRO 2010
Aðalfundur ICEPRO var haldinn 22. febrúar 2010 í Skála á Hótel Sögu. Úti var glampandi sólskin og 6 stiga frost. Fundurinn var vel sóttur.
Hjörtur Þorgilsson formaður ICEPRO stýrði fundi og bauð menn velkomna. Á eftir léttum hádegismat ávarpaði Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra fundinn.
meira >>
|
Aðalfundur ICEPRO 22.2.2010 - Dagskrá
|
18.2.2010
|
Aðalfundur ICEPRO 2010
EDI bikarinn afhentur í fjórtánda sinn
Aðalfundur ICEPRO verður haldinn í Skála á Hótel Sögu, mánudaginn 22. febrúar 2010. Fundurinn hefst kl. 12:00.
meira >>
|
Ráðstefna um rafræn innkaup 9. til 11. febrúar 201
|
14.1.2010
|
Ráðstefna um rafræn innkaup 9. til 11. febrúar 2010 í Malmö
Á þessari þriggja daga ráðstefnu var kynnt stórátak til að auðvelda rafræn innkaup um gjörvalla Evrópu.
meira >>
|
Hátíðarkveðja - Season's Greetings 2009
|
23.12.2009
|
|
Rafræn viðskipti í XML - tækifæri til hagræðingar
|
11.12.2009
|
Staðlastofnun Evrópu (CEN) hefur gefið út tækniforskrift (CWA) fyrir rafræn innkaup. Vinnuhópurinn WS/BII (Workshop on 'Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe') hefur lokið 26 umgjörðum, sem snerta rafræn innkaup, sjá lista neðst. Tækniforskriftin nær yfir innihaldslýsingar skeyta, dæmi, leiðbeiningar, verkfæri, svo og samræmdar tillögur um málskipan XML skjalanna.
izle
kral oyun
oyun oyna
video izle
oyun
video
yemek tarifleri
kadin
pes
oyun
meira >>
|
Heimasíða rafrænna viðskipta
|
30.10.2009
|
Um miðjan október var opnaður "vefur um rafræn viðskipti" á vefsvæði www.ut.is. Fjallað er um miðlun viðskiptaskeyta á milli aðila í íslensku umhverfi. Þarna er að finna handbók rafrænna viðskipta, þróunarverkefni, tækniforskriftir, EDIFACT staðla, samtök hérlendis og erlendis sem standa að útbreiðslu rafrænna viðskipta og reynsla þeirra.
meira >>
|
Lítil dönsk fyrirtæki senda rafræna reikninga bein
|
21.9.2009
|
Jafnvel lítil dönsk fyrirtæki geta sent rafræna reikninga beint úr PC tölvum sínum. Rúmlega 33.000 dönsk fyrirtæki senda nú rafræna reikninga til opinberra stofnana. Þau nota NemHandel kerfið.
meira >>
|
Geta Íslendingar sparað 11 milljarða með rafrænum
|
15.9.2009
|
Vitnað er í skýrslu Capgemini Consulting frá haustinu 2007, en þar "er ávinningur af upptöku rafrænna innkaupa áætlaður nema 0,8% af VLF í besta falli. Ef sama gildir á Íslandi samsvarar það 11 milljörðum króna" ...
meira >>
|
PEPPOL ráðstefna 21-23. okt. í Kaupmannahöfn
|
26.6.2009
|
PEPPOL (Pan-European Public eProcurement On-Line) heldur ráðstefnu í Kaupmannahöfn dagana 21. til 23. október næstkomandi. Ráðstefnan er 3 dagar:
1. Viðskiptatækifæri og innviðir PEPPOL kynnt fyrir stjórnendum. 2. Verkefnastjórum í upplýsingatækni kynntur tæknihluti PEPPOL 3. Framleiðendur millibúnaðar kynna lausnir sínar og hugbúnaðarsöfn.
Sjá: http://www.peppol.eu/News/events-1/peppol-innovation-conference
meira >>
|
Stuttmynd um ICEPRO 20 ára
|
16.6.2009
|
Í tilefni þess að nú eru liðin 20 ár frá stofnun ICEPRO, var búin til stuttmynd (4 mín.) sem segir lítillega frá tilurð og tilgangi ICEPRO, og tólf handhöfum EDI-bikarsins.
meira >>
|
Af aðalfundi ICEPRO 2009
|
5.6.2009
|
Fjársýsla Ríkisins hlaut EDI-bikarinn
Aðalfundur ICEPRO fór fram á Hótel Sögu fimmtudaginn 4. júní, í sumarblíðu og 14 stiga hita.
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra ávarpaði fundinn og afhenti EDI-bikarinn, en síðan flutti Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins fróðlegt erindi sem hér "aukin framleiðni með rafrænum viðskiptum". Síðan tóku við hefðbundin aðalfundarstörf.
meira >>
|
Dagskrá aðalfundar ICEPRO 2009
|
3.6.2009
|
Dagskrá aðalfundar ICEPRO sem auglýstur var 20. maí síðastliðinn liggur nú fyrir. Aðalfundurinn verður haldinn í Skála (Yale) á Hótel Sögu, fimmtudaginn 4. júní 2009 og hefst kl. 12:00.
meira >>
|
Evrópusambandið innleiðir NES verklagið
|
7.4.2009
|
Fjársýsla Evrópusambandsins hóf fyrir nokkru það verkefni að innleiða rafræn viðskipti til eigin notkunar gagnart birgjum og réðu til verksins PriceWaterhouseCoopers í Belgíu.
PwC hóf vinnuna með því að skoða hvað væri til og komst að þeirri niðurstöðu að NES umgjarðirnar hentuðu best. Í kjölfarið var hafist handa við að innleiða umgjörð 8 í NES, sem inniheldur reikning, kredinótu og kerfissvar reiknings.
meira >>
|
40 milljarða evra sparnaður
|
7.4.2009
|
ICEPRO stuðlar að hlutdeild Íslendinga í þessum sparnaði með þátttöku sinni í sérfræðingahópum í rafrænum viðskiptum og með því að stuðla að útbreiðslu og innleiðingu afurða hópanna á Íslandi.
meira >>
|
Parísarfundur um rafræn viðskipti í XML
|
7.4.2009
|
Flestir þekkja EDIFACT skeyti svo sem reikninga, pantanir, tollskýrslur o.m.fl. Nú tekur ICEPRO þátt í innleiðingu rafrænna viðskipta með XML, sem er sniðið fyrir samskipti um veraldarvefinn. Handbókin "rafræn innkaup með XML" er íslensk handbók um viðskiptaferla og -skeyti með notkun NES/UBL staðalsins fyrir XML.
meira >>
|
Sænskar sveitarstjórnir innleiða rafræna reikninga
|
29.10.2008
|
Sænska ríkisstjórnin ákvað að allar sveitarstjórnir skyldu geta unnið reikninga rafrænt í síðasta lagi 1. júlí í ár. Með því má spara ríkinu fjóra milljarða sænskra króna á næstu 5 árum.
meira >>
|
Efling viðskipta með rafrænum skjölum
|
10.7.2008
|
Rafræn viðskipti
Markmið ICEPRO er að koma á samræmingu um fyrirkomulag rafrænna viðskipta. Hér verður fjallað um varðveislu upphafsgagna, EDI og XML, norrænt samstarf, samræmingu skeyta svo sem reikninga og pantana, afurð samstarfsins, ávinning af upptöku rafrænna skeyta o.m.fl.
meira >>
|
Drög að ítarinnkaupum í XML
|
13.3.2008
|
Nýlega komu út drög að umgjörð (profile) fyrir ítarinnkaup (advanced procurement) með XML skjölum. Útgefandi er BII (Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe) vinnunefnd Evrópsku staðlasamtakannna, CEN.
meira >>
|
CEN-BII vinnunefnd um rafræn innkaup
|
12.3.2008
|
CEN-WS/BII (Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe)
Stofnfundur CEN vinnunefndar er nefnist CEN-WS/BII var haldinn í Vín í Austurríki dagana 18.-19. júní. Formaður hópsins er Peter Borresen frá IT og Telestyrelsen í Danmörku, en með honum er Jostein Frömyr, Noregi, framkvæmdastjóri NES hópsins ásamt fleirum úr NES hópnum. Markmið nefndarinnar er aðlögun NES og CODICE verklagsins að OASIS UBL 2.0 staðlinum. Norðurlandaþjóðirnar fimm leggja til NES verklagið en Spánverjar CODICE verklagið. Auk þeirra taka þátt fulltrúar Frakka, Belga, Austurríkis, Ungverjalands, Ítalíu, Rúmeníu og Skotlands.
meira >>
|
Icelandair hlaut EDI-bikarinn 2008
|
4.3.2008
|
Icelandair hlaut EDI-bikarinn 2008
Aðalfundur ICEPRO fór fram í Skála á Hótel Sögu í sólskini og blíðu. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ávarpaði fundinn og afhenti EDI-bikarinn. Á fundinum var haldið fróðlegt erindi um stefnumótun Íslendinga í upplýsingatækni fyrir árin 2008-2011. Síðan tóku við hefðbundin aðalfundarstörf.
meira >>
|
Aðalfundur ICEPRO 26. feb. 2008
|
18.2.2008
|
Aðalfundur ICEPRO 2008
ICEPRO verðlaunin afhent í tólfta sinn
meira >>
|
Innleiðing NES/UBL staðals um XML reikninga
|
21.12.2007
|
NES verklagið um UBL staðalinn sem ICEPRO tók saman í fyrra í samvinnu við Norðurlöndin, hefur þegar verið tekinn í notkun á Íslandi.
meira >>
|
Ný útgáfa íslensku handbókarinnar
|
21.12.2007
|
Útgáfa NES 1.1 verklagsins við UBL 2.0 staðalinn er komin út.
meira >>
|
Fundir framundan
|
30.11.2007
|
Interoperability - One electronic procurement in Europe, Copenhagen, 31 March 2008
CEN/ISSS Interoperability, ICT stds., eGovernment, eCatalogues, eTourism. Kynningar og vinnufundir.
meira >>
|
Fundir að baki
|
8.10.2007
|
Veljið "meira" til að birta tengla með fundargögnum.
meira >>
|
NES hópurinn - tilgangur og markmið
|
27.7.2007
|
NES hópurinn
NES (Northern European Subset) hópurinn var stofnaður í samvinnu Norðurlandanna og Bretlands. Þátttakendur hópsins eru fulltrúar ríkis og atvinnulífs 6 landa, en þau eru: Ísland, Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Finnland og Bretland.
meira >>
|
Ný útgáfa af NES verklaginu
|
16.5.2007
|
Samnorræni NES (North European Subset) hópurinn gaf út verklag sitt við UBL 2.0 staðalinn í desemberlok 2006. Samnorræna NES/UBL staðalinn má finna á www.nesubl.eu og íslensk handbók hér.
meira >>
|
Burðarlagið
|
16.5.2007
|
Hvernig er best að senda rafræn skjöl með NES/UBL sniði eftir Netinu? Hópur manna kom saman til að ræða málið fann þessa leið sem hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum. Hópurinn bendir á þessa leið: ICELANDIC-Extreme Message Transport_v0.6.pdf sem ætti að vera öllum fær.
meira >>
|
Hagkvæmar fréttir af aðalfundi ICEPRO 2007
|
26.2.2007
|
Aðalfundur ICEPRO 2007 fór fram í glampandi sólskini og 7 stiga frosti. Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpaði fundinn og afhenti EDI-bikarinn. NES/UBL staðallinn var kynntur af fulltrúum fjársýslunnar, bankanna, hugbúnaðarhúsa og ICEPRO.
meira >>
|
Aðalfundur ICEPRO 26.2. 2007 - Dagskrá
|
22.2.2007
|
Aðalfundur ICEPRO 2007
haldinn í Skála, Hótel Sögu
mánudaginn 26. febrúar
meira >>
|
Fréttatilkynning: Einn staðall á Norðurlöndum!
|
22.1.2007
|
Samvinna um þróun eins staðals um rafræn innkaup á Norðurlöndum!
Ath: Frétt þessi er gefin út af "NES" hópnum og birtist á öllum Norðurlöndunum og í Bretlandi.
Norðurlönd hafa haft samstarf um og nýlega samþykkt samræmda innleiðingu staðalsins UBL 2.0. vegna rafrænna innkaupa . Öllum Evrópulöndum er nú boðin þátttaka í verkefninu á vinnufundi sem haldinn verður í Brussel 15. febrúar 2007.
meira >>
|
Íslensk handbók fyrir rafræn innkaup í XML
|
5.1.2007
|
HANDBÓKIN komin á vefinn!
Komnar eru út samnorrænar leiðbeiningar um notkun XML staðalsins UBL 2.0 frá OASIS. Í þeim er tekið tillit til þarfa Íslendinga.
Þar með er leiðin greið fyrir samræmdar XML sendingar rafrænna reikninga, pantana og vörulista.
meira >>
|
Fjármálaráðuneyti Dana: eGovernment in Denmark
|
6.12.2006
|
What has been achieved in eGovernment in Denmark –and how?
Sjá Glærur:
meira >>
|
Rafræn viðskipti á hugbúnaðarráðstefnu Ský
|
15.11.2006
|
Framtak ICEPRO um að koma þjóðlegum kröfum Íslendinga inn í samnorrænan staðal var kynnt rækilega á hugbúnaðarráðstefnu Ský þ. 14. nóvember síðastliðinn. Tryggvi Þórðarson frá Hugbúnaði sté í pontu og skýrði frá því sem ICEPRO er að gera og handbókinni sem kemur út nú í lok nóvember.
meira >>
|
Handbók fyrir rafræna reikninga
|
14.11.2006
|
Föstudaginn 3. nóvember síðastliðinn komu út lokadrög að handbók fyrir innleiðingu rafrænna reikninga í XML hér á landi.
meira >>
|
Sérfræðingaráðstefna á Íslandi
|
30.9.2006
|
Dagana 28. til 20. ágúst voru 12 sérfræðingar frá Norðurlöndum á ráðstefnu í Reykjavík ásamt fjórum úr tækninefnd ICEPRO. Rætt var um samnorræna notkun staðalsins UBL 2,0 fyrir rafræna reikninga og pantanir.
meira >>
|
Samráðsfundur með bönkunum í maí
|
31.7.2006
|
Samráðsfundur ICEPRO og fulltrúa bankanna hittust í maí 2006.
meira >>
|
Verslunar- og vörudreifingarhópur ICEPRO
|
31.7.2006
|
hélt nokkra fundi í júní um greiðsluupplýsingar sem vantar í INVOIC skeytið.
meira >>
|
Fundur NES hópsins 28-29. ágúst
|
31.7.2006
|
Mánudaginn og þriðjudaginn 28-29. ágúst hittast meðlimir NES hópsins á Íslandi til að ræða samnorrænar niðurstöður við gerð rafrænna reikninga.
meira >>
|
Fundur nr. 3 um rafræna reikninga á Norðurlöndum
|
25.4.2006
|
Munu samræmdir rafrænir reikningar líta dagsins ljós nú í haust? Að þessu er unnið hörðum höndum á Íslandi jafnt sem á Norðurlöndum og Englandi. Samstarfið hófst í febrúar í framhaldi af ráðstefnu ICEPRO um rafræna reikninga og stendur enn. Símafundir eru haldnir vikulega og þetta verður 3. vinnu- eða stöðufundur verksins hér á landi. Jafnframt verður þetta kynningarfundur fyrir þá sem vilja kynna sér málið.
meira >>
|
Fundur Flutningshóps ICEPRO 22. mars
|
18.4.2006
|
Miðvikudaginn 22. mars kom Flutningshópurinn saman til fundar í húsakynnum ICEPRO. Viðstaddir voru fulltrúar tollstjóra og helstu farmflytjenda. Tilgangur fundarins var að fjalla um hin nýju tollalög og útfærslu þeirra.
meira >>
|
Hugur í mönnum á aðalfundi ICEPRO
|
28.2.2006
|
Hugur var í mönnum á aðalfundi ICEPRO enda kom þar margt fram bæði athyglisvert og nýstárlegt.
Valgerður Sverrisdóttir Iðnaðar- og Viðskiptaráðherra flutti ávarp og afhenti ICEPRO verðlaunin, hinn veglega EDI-bikar. Þetta var í tíunda sinn sem farandbikar þessi er afhentur og í þetta sinn hlaut Ríkisskattstjóri hnossið. Flutti Indriði H. Þorláksson ávarp í lokin og þakkaði fyrir hönd embættis síns.
Aðalbjörn Þórólfsson, framkvæmdastjóri flutti síðan athyglisvert erindi um Rafrænt Markaðstorg. Kom hann víða við í ræðu sinni, fjallaði um tilurð torgsins, vöxt þess og viðgang, og væntingar til þess á komandi árum.
meira >>
|
Breytt dagskrá á aðalfundi ICEPRO á mánudaginn
|
24.2.2006
|
Aðalfundur ICEPRO verður haldinn í Skála á Hótel Sögu, mánudaginn 27. febrúar 2006. Fundurinn hefst kl. 12:00.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa munu þau Valgerður Sverrisdóttir, Iðnaðar- og Viðskiptaráðherra og Aðalbjörn Þórólfsson Ph.D, framkvæmdastjóri ávarpa fundinn.
meira >>
|
Aðalfundur ICEPRO 2006, mánudaginn 27. febrúar
|
17.2.2006
|
Aðalfundur ICEPRO verður haldinn í Skála á Hótel Sögu, mánudaginn 27. febrúar 2006. Fundurinn hefst kl. 12:00.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa munu þau Valgerður Sverrisdóttir, Iðnaðar- og Viðskiptaráðherra og Guðbrandur Örn Arnarson, þróunarstjóri viðskiptaþróunar 365 ljósvakamiðla ávarpa fundinn.
meira >>
|
Vinnufundur um XML fimmtudaginn 9. feb. kl. 10:30
|
6.2.2006
|
Á ráðstefnunni á "XML degi rafrænna reikninga" skráðu nokkrir sig á lista til að mynda vinnuhóp um sameiginlega XML staðla á Norðurlöndum. Nú er komið að fyrsta fundi, sem verður haldinn hjá Icepro fimmtudaginn 9. febrúar kl. 10:30 í Húsi Verslunarinnar, Kringlunni 7, 7.hæð. Farið verður yfir stöðuna á Norðurlöndum eins og hún er nú og hópurinn þarf að velja sér formann til að byrja með.
meira >>
|
IcePro verðlaunin 2006 – Tilnefningar óskast.
|
6.2.2006
|
IcePro verðlaunin 2006 – Tilnefningar óskast.
Árlega veitir IcePro EDI-bikarinn í verðlaun fyrir framúrskarandi árangur
á sviði rafrænna samskipta. Bikarinn er veittur því fyrirtæki, stofnun,
verkefni eða lausn sem skarað hefur fram úr að mati dómnefndar. Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun afhenda verðlaunin á
aðalfundi IcePro í febrúar.
meira >>
|
Glærur frá XML degi rafrænna reikninga
|
27.1.2006
|
Fyrirlesarar á "XML degi rafrænna reikninga hafa góðfúslega veitt leyfi til að birta glærur þeirra á vef Icepro. Hér birtast þær í sömu röð og þær birtust á dagskránni.
meira >>
|
Dagskrá: XML dagur rafrænna reikninga
|
11.1.2006
|
mánudaginn 23. janúar 2006 kl. 13-17,
Gullteigi A, Grand Hótel, Reykjavík.
meira >>
|
Rafrænir reikningar í XML
|
6.1.2006
|
Icepro efnir til "XML dags um rafræna reikninga" mánudaginn 23. janúar 2006.
Margt markvert hefur gerst í rafrænum viðskiptum á síðastliðnum mánuðum. Það er hlutverk Icepro að fræða atvinnulífið hér um það sem er nýjast og merkast í rafrænum samskiptum í kringum okkur, til þess að gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að taka þátt í þeirri þróun sem þar fer fram.
meira >>
|
XML reikningagerð: Spara 5 milljarða á ári
|
8.12.2005
|
Norðurlönd vísa veginn við gerð alheimsstaðals í XML reikningagerð. Frumkvæði norsku bankanna gæti skilað 5 milljarða NOK sparnaði á ári. Danir hafa lögfest rafræna reikningagerð.
meira >>
|
UN/CEFACT um XML skeytin og Core Components
|
28.10.2005
|
Niðurstöður UN/CEFACT Forum: Mikilvæg skref hafa náðst í samstarfinu um XML skeytin.
Vísað er til samstarfs við GS1,OASIS-UBL, og XBRL.
Core Components Library skapar samræmdan grundvöll fyrir uppbyggingu skeyta.
meira >>
|
Rannsóknir á viðskiptum í netmiðlum (eMedia)
|
28.10.2005
|
Samstarfsverkefni Norðurlandanna:
ICEPRO og samstarfsaðilar þess á Norðurlöndum efna til Ráðstefnu um "viðskipti gegnum ljósvakamiðla", svo sem gagnvirkt sjónvarp, farsíma, lýðnetið, tölvuleiki og raunar hvers kyns tengingar og samskipti. Ráðstefnan verður haldin í Kaupmannahöfn, föstudaginn 25. nóvember 2005.
meira >>
|
Fundir Nordipro og Europro í september 2005
|
25.10.2005
|
Dagana 8. og 9. september voru árlegir fundir Nordipro og Europro haldnir hér á landi, í húsakynnum Icepro. Fundargerð fundarins liggur fyrir NordipromødeiReykjavik.doc svo og mynd af fundarmönnum: Europro8sept2005.jpg
Bjarne Emig frá Danmörku fjallaði um XML notkun í rafrænum viðskiptum t.d. við reikningagerð í Danmörku.
meira >>
|
Framkvæmdastjóraskipti hjá IcePro
|
14.9.2005
|
Ragnar Þorgeirsson óskaði nýverið eftir að losna úr starfi hjá IcePro. Stjórn hefur sýnt óskum hans um skjót starfslok skilning, og gott samkomulag hefur náðst um þau.
Þá hefur tímabundið samkomulag hefur verið gert við Örn Kaldalóns, varamann í stjórn, um að hann taki við daglegum rekstri frá 15. september.
Ragnar tekur við starfi framkvæmdastjóra PricewaterhouseCoopers á Íslandi, sjá www.pwc.is
meira >>
|
Kynning á dönsku ebXML verkefni
|
6.9.2005
|
IcePro stendur fyrir fundi fimmtudaginn 8. september n.k. þar sem gefst tækifæri til að kynnast verkefni sem unnið er að í flutningageiranum í Danmörku.
Framsögumaður er Bjarne Emig frá DanPro og titill framsöguerindis er :
"ebXML in the Transportsector in Denmark"
meira >>
|
IcePro hlýtur verkefnisstyrk frá NIC
|
22.7.2005
|
Norræna nýsköpunarmiðstöðin, eða Nordisk InnovationsCenter (NIC), hefur samþykkt styrkumsókn vegna verkefnisins eFORUM. Þátttakendur koma af öllum Norðurlöndunum en auk IcePro kemur EJS að því, fyrir Íslands hönd. Markmið verkefnisins er að stofna til vettvangs meðal lykilaðila á sviði rafrænna viðskipta á Norðurlöndum, þ.m.t. fulltrúum atvinnulífs, stjórnvalda og háskólaumhverfis.
meira >>
|
NordiPro og EuroPro funda hér á landi í september
|
22.7.2005
|
Dagana 8. og 9. september n.k. verða haldnir, í Reykjavík, árlegir fundir NordiPro, sem er samstarfsvettvangur Pro-nefndanna á Norðurlöndunum, og evrópska vettvangsins EuroPro. Það er áhugavert, og mikill heiður fyrir IcePro, að halda fundina og taka á móti fjölda erlendra sérfræðinga á sviði rafrænna samskipta.
meira >>
|
Fáir þekkja"gagnaöryggisstefnu" síns vinnustaðar
|
21.7.2005
|
Samkvæmt óformlegri könnun IcePro kemur í ljós að aðeins 31% þeirra sem heimsækja þessa síðu þekkja gagnaöryggisstefnu síns vinnustaðar. Hlýtur þessi niðurstaða að koma nokkuð á óvart ef horft er til þeirrar miklu umræðu sem á sér stað um mikilvægi gagnaöryggis m.a. í tengslum við rafræn samskipti þ.m.t. auðkenni, rafrænar undirskriftir o.s.frv.
12% bættu gráu ofaná svart og sögðu enga gagnaöryggisstefnu vera til staðar!
meira >>
|
Brýninga - Aðalfundur 2005
|
23.2.2005
|
Á Aðalfundi IcePro, 22. feb. s.l. fluttu Valgerður Sverrisdóttir Iðnaðar og viðskiptaráðherra og Ingvar Kristinsson, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, erindi. Bæði voru erindin mjög áhugaverð og má segja að þau hafi verið nokkuð samhljóma hvað varðar væntingar um eflingu iðnaðarins og mikilvægi rafrænna samskipta.
meira >>
|
Landlæknisembættið - Sóttvarnalæknir sigurvegari
|
22.2.2005
|

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti IcePro-verðlaunin, EDI-bikarinn vinsæla, á aðalfundi IcePro sem haldinn var í dag. Að þessu sinni var það Landlæknisembættið - Sóttvarnalæknir sem hlaut verðlaunin fyrir metnaðarfullt verkefni um innleiðingu rafrænna skráninga bólusetninga frá heilsugæslustöðvum.
Þórólfur Guðnason, yfirlæknir Sóttvarnasviðs Landlæknisembættisins, tekur við IcePro verðlaununum af Valgerði Sverrisdóttur, Iðnaðar- og Viðskiptaráðherra
meira >>
|
Góður fundur um einkaleyfi á hugbúnaði
|
18.2.2005
|
Nú er lokið morgunverðarfundi um einkaleyfi á hugbúnaði. Fundurinn heppnaðist í alla staði vel og var húsfylli. Kveikjan að fundinum var tilskipun um einkaleyfi á hugbúnaði, sem er í smíðum hjá ESB. Ljóst þykir að tilskipunin, nái hún fram að ganga, mun hafa mikil áhrif á þróunar- og viðskiptaumhverfi hugbúnaðarfyrirtækja.
meira >>
|
Einkaleyfi á hugbúnaði - "Software Patents"
|
10.2.2005
|
IcePro, í samstarfi við Einkaleyfastofu, Samtök um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar og Samtök iðnaðarins, boðar til kynningar- og umræðufundar um drög að tilskipun Evrópusambandsins um einkaleyfi á hugbúnaði. Fundurinn fer fram á Grand hótel Reykjavík 17. febrúar n.k. og hefst kl. 8.15.
Tilskipunin hefur hlotið mikla athygli og skapað mikla umræðu erlendis, enda mat margra að hún gjörbreyti öllu þróunar- og viðskiptaumhverfi fyrirtækja í upplýsingatækni iðnaði.
Hvernig meta hagsmunaaðilar tilskipunina og áhrif hennar hér á landi? Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að skrá þátttöku fyrirfram.
meira >>
|
Pannordic transport XML
|
7.2.2005
|
Hér á landi hafa flutningageirinn og tollayfirvöld verið einna fremst í flokki, hvað varðar þróun rafrænna viðskipta. Hjá IcePro er unnið að undirbúningi verkefnis á þessu sviði þar sem Eimskip, Samskip, Icelandair cargo og Tollurinn taka þátt. Fulltrúum verkefnisins bauðst nýverið að taka þátt í fundi með norrænum systursamtökum IcePro og samtökum flutningafyrirtækja . Á fundinum, sem bar yfirskriftina “Pannordic transport XML”, kom fram mikill áhugi á að efla norrænt samstarf á flutningasviði. Meðfylgjandi eru minnispunktar frá fundinum:
meira >>
|
Aðalfundur IcePro 2005
|
31.1.2005
|
Aðalfundur IcePro verður haldinn í Skála á Radisson SAS hótel Sögu, þriðjudaginn 22. febrúar n.k. kl. 12.00
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa munu þau Valgerður Sverrisdóttir, Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Ingvar Kristinsson, formaður SUT, ávarpa fundinn.
meira >>
|
Þrjú fyrirtæki bætast í hópinn
|
30.8.2004
|
Að afloknum sumarfríum hafa 3 fyrirtæki gengið í IcePro, samstarfsvettvang um eflingu rafrænna viðskipta. Hugbúnaðarfyrirtækið Eskill er gengið til liðs við IcePro auk Pennans og Kaupáss sem raunar hafa tekið þátt í verkefnum á vettvangi IcePro um nokkurt skeið, en loks valið að slást í hópinn. Þessi öflugu og framsæknu fyrirtæki styrkja starf IcePro og undirstrikar þátttaka þeirra mikilvægi starfseminnar.
meira >>
|
IcePro mælir með notkun ebMS staðalsins
|
27.8.2004
|
Til að liðka fyrir og flýta útbreyðslu rafrænna viðskipta á Íslandi mælist IcePro til að fyrirtæki taki upp gagnasendingar sín á milli samkvæmt "ebMS staðli". ebMS er gagnaflutningsstaðall ebXML, útgefinn af Sameinuðu þjóðunum og OASIS og hefur meðal annars hlotið ISO vottun.
meira >>
|
IcePro eflist
|
21.5.2004
|
Mikilvægi samstarfs á sviði rafrænna viðskipta hefur aldrei verið meira en nú. Til marks um það hefur enn bæst við félagaskrá IcePro. Fögnum við 5 nýjum og öflugum félögum og þeim slagkrafti sem þeir gefa starfinu, byggt á reynslu sinni, þekkingu og framsækni.
meira >>
|
UN/CEFACT og OASIS efla samstarf sitt um ebXML
|
21.5.2004
|
Eftir nokkra óvissu og tímabundna samstarfsörðugleika hafa UN/CEFACT og OASIS nú tekið upp þráðinn á ný varðandi sameiginlega þróun og útbreiðslu ebXML. Í sameiginlegri fréttatilkynningu samtakanna segir m.a. að ...
meira >>
|
ebXML staðlar hljóta ISO-vottun
|
30.3.2004
|
Alþjóðlega staðlastofnunin ISO hefur vottað 4 ebXML OASIS staðla sem gera fyrirtækjum, óháð stærð, starfsgrein eða landfræðilegri staðsetningu, kleift að stunda rafræn viðskipti yfir Internetið.
meira >>
|
IcePro og stefnan um upplýsingasamfélagið
|
10.3.2004
|
Á morgun mun ríkisstjórn Íslands kynna, með formlegum hætti, nýja stefnu sína um upplýsingasamfélagið. Aðilum er málinu tengjast hefur verið boðið til sérstaks kynningarfundar. Við undirbúning stefnumótunarinnar átti IcePro fulltrúa í samráðshópi. IcePro væntir mikils af því starfi sem lagt er upp með og vill leggja sitt af mörkum til að hraða þessari þróun og gera hana markvissari.
Á aðalfundi IcePro 27. febrúar s.l. voru helstu niðurstöður nefndarinnar, sem tengjast viðfangsefnum IcePro, kynntar. Má því segja að um "forsýningu" hafi verið að ræða - aðeins fyrir aðila að IcePro!
meira >>
|
UBL og rafrænt markaðstorg í Danmörku
|
8.3.2004
|
Danir velja OASIS Universal Business Language (UBL) sem staðal rafrænna viðskipta hins opinbera.
Þekkingar-, tækni- og þróunarráðuneytið hefur leitt uppbyggingu rafræns markaðstorgs sem velta mun 100 milljörðum danskra króna árlega.
meira >>
|
IcePro - verðlaunin 2004 til Egils
|
3.3.2004
|
Ölgerð Egils Skallagrímssonar hf. hefur hlotið IcePro-verðaunin 2004 fyrir góðan árangur og markvissa stefnu á sviði rafrænna viðskipta. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti verðlaunin, EDI-bikarinn eftirsótta, á aðalfundi IcePro.
meira >>
|
Viðskiptalífið og rafræn stjórnsýsla
|
3.3.2004
|
Varðandi rafræna stjórnsýslu, sem nú er mikið í umræðunni, telur IcePro að hún snúist ekki aðeins um fjárhagslega hagræðingu og endurskipulagningu ferla innan stjórnsýslunnar sjálfrar – og sé ekki “einkamál” hins opinbera að fást við.
Hluti af rekstrarumhverfi fyrirtækja, í hinum ýmsu greinum, eru tíð og mikilvæg samskipti við hinar ýmsu stjórnsýslueiningar.
meira >>
|
ebXML ráðstefna IcePro 15. desember sl.
|
20.2.2004
|
Þann 15. desember s.l. stóð IcPro fyrir ráðstefnu um ebXML; hugmyndafræðina, tæknina og reynsluna. Aðal framsögumaður var Pim von der Eijk frá OASIS í Hollandi. Einnig kom fram að íslensk fyrirtæki og stofnanir yrðu að stilla saman strengi sína og efla framþróun rafrænna samskipta. Aðsókn var mjög góð og þurfti að flytja ráðstefnuna í stærri sal en gert var ráð fyrir í undirbúningi. Sjá kynningu ráðstefnunnar: auglysing.jpg.
meira >>
|
Aðalfundur IcePro 2004
|
20.2.2004
|
Aðalfundur IcePro verður haldinn í Skála, Hótel Sögu 27. febrúar n.k. Aðgang að fundinum eiga fulltrúar allra aðildarfyrirtækja og stofnanna, sem eru um 80 talsins. Tekið er við skráningum á fundinn: tölvupóstur icepro@icepro.is eða í síma 510 7100. Valgerður Sverrisdóttir Iðnaðar- og Viðskiptaráðherra mun ávarpa aðalfund IcePro og afhenda hinn árlega IcePro-bikar því fyrirtæki eða stofnun er þykir skara framúr á sviði rafrænna viðskipta.
meira >>
|
Fimmta hvert fyrirtæki selur vörur á Netinu
|
20.2.2004
|
Um 97% íslenskra fyrirtækja eru með tengingu við internetið og er háhraðatenging langalgengust (81%). Fyrirtæki með eigin vefsetur eru 70% allra fyrirtækja og hefur þeim fjölgað stórlega frá árinu 2002. Fimmta hvert fyrirtæki seldi vöru eða þjónustu af vefsíðu árið 2002 og 37% fyrirtækja keypti vöru eða þjónustu um internetið sama ár. Leiða má að því líkur að þessar tölur hafi hækkað enn á seinustu misserum.
meira >>
|